Blómabærinn Hveragerði hefur upp á að bjóða ótrúlega fjölbreytta möguleika til útivistar, heilsuræktar og slökunar. Fjöldi fallegra gönguleiða er í næsta nágrenni og öll helsta þjónusta er til staðar fyrir gesti sem koma þangað til dvalar.  

Nýir og skemmtilegir veitingastaðir og pöbbar hafa skotið upp kollinum á síðustu misserum svo auðvelt er að gera sér dagamun í mat og drykk. Íbúðirnar í INNI eru allar með vel búnum eldhúsum og lítið mál er að rölta út í næstu kjörbúð eða bakarí og fylla á ísskápinn. 

Hveragerði er aðeins í 45 km fjarlægð frá höfuðborginni og því einstaklega þægilegt að skjótast þangað í stutta helgarferð eða nokkra daga og njóta kyrrðar og slökunar í fallegu umhverfi.